Microsoft 365 & Identity
Microsoft 365, Entra ID, Intune, Exchange Online og hybrid Microsoft-umhverfi.

Vignir Smári Vignisson
Ráðgjafi í upplýsingatækni
Microsoft lausnir, öryggi & sjálfvirkni
Ég hjálpa fyrirtækjum að greina, bæta og sjálfvirknivæða Microsoft-umhverfi með áherslu á öryggi, stöðugleika og einfaldari rekstur.
Þetta er ég!

Hver er ég?
Ég vinn aðallega með Microsoft 365, auðkenni og aðgangsstýringu, endpoint management, öryggi og rekstrarumhverfi fyrirtækja.
Ég legg áherslu á að finna orsök vandamála frekar en að laga aðeins einkennin, skilja innbyrðis tengsl kerfa áður en breytingar eru gerðar og sjálfvirknivæða endurtekna vinnu þar sem það á við.
Verkefnin mín spanna allt frá bilanagreiningu og rekstrarbótum yfir í öryggisyfirferðir, innleiðingar á Microsoft 365, Entra ID og Intune, vöktun og tæknilega ráðgjöf.
Í stuttu máli
Helstu tæknisvið sem ég vinn með í ráðgjöf, innleiðingum og rekstrarbótum.
Microsoft 365, Entra ID, Intune, Exchange Online og hybrid Microsoft-umhverfi.
Microsoft Defender, Conditional Access, privileged access, MFA/FIDO2 og öryggisyfirferðir.
PowerShell, RMM components, vöktun og sjálfvirkar lausnir sem draga úr endurtekinni handavinnu.
Greining á orsökum og kerfistengslum, migrations, tækniskuld og úrbætur á rekstrarumhverfi.

Ráðgjafi í upplýsingatækni | Microsoft ský, öryggi & innviðir
Starfa við greiningu, rekstrarbætur og tæknilega útfærslu í Microsoft-umhverfum hjá OK. Verkefnin ná meðal annars til Microsoft 365, Azure, Entra ID, Intune, öryggis, sjálfvirkni, vöktunar og bilanagreiningar í innviðum.

Tæknisérfræðingur | Microsoft umhverfi & rekstur
Hóf störf í tækniborði og notendaþjónustu hjá Þekkingu og færði mig síðar yfir í sérhæfðari verkefni tengd Microsoft-umhverfum, kerfisrekstri, innleiðingum, sjálfvirkni og greiningu flóknari rekstrarvandamála.
Dæmi um verkefni og vinnu sem ég tek reglulega að mér.
Byggi reglulega endurnýtanlegar audit-, monitoring- og automation-lausnir sem gefa sjálfvirka yfirsýn yfir stöðu, útgáfur og frávik í mörgum Microsoft-umhverfum.
Kortlegg DNS, DHCP, þjóna, útstöðvar og aðrar dependencies áður en eldri kerfi eða þjónustur eru teknar úr rekstri til að minnka áhættu og tryggja örugga útleiðingu.
Greini og staðfesti Critical/High findings, forgangsraða raunverulegri áhættu og breyti scanner output í skýrt scope, tímaáætlun og framkvæmanleg úrbótaverkefni.
Set upp workflow og utanumhald fyrir umfangsmiklar Microsoft 365 breytingar yfir mörg customer environments. Í einu slíku verkefni náði vinnan yfir um 140 umhverfi.
Microsoft Learn
Valin badges og trophies úr Microsoft Learn fyrir Identity, Azure, Security og Windows.
31
BADGES
5
TROPHIES
18
VALIN
18 valin badges & trophies · sjálfvirk fletting stöðvast þegar músin er yfir
Opinberir Microsoft Learn-tenglar opnast í nýjum flipa